Sjómenn skrifa undir lengstu samninga sögunnar Samúel Karl Ólason skrifar 9. febrúar 2023 23:46 Úr Karphúsinu í kvöld. Vísir/Viktor Örn Kátt var á hjalla og vöfflulyktin angaði í Karphúsinu í kvöld þar sem forsvarsmenn Sjómannasambands Íslands og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) skrifuðu undir nýja kjarasamninga. Samningar þessir eiga að gilda til tíu ára. Þessir samningar eru líklega þeir lengstu sem skrifað hefur verið undir á Íslandi. Sjómenn hafa verið án samninga frá lokum árs 2019 en viðræðum var síðast slitið árið 2021. Viðræður hafa staðið yfir í Karphúsinu frá áramótum og hefur þeim verið lýst sem hörðum en góðum. Í tilkynningu frá SFS segir að megininntak samninganna lúti að betri kjörum og réttindum til framtíðar, auk hnitmiðaðra aðgerða til að auka traust við skipti á verðmætum úr sjó. Greiðslur í lífeyrissjóð og kauptrygging hækki í samræmi við samninga á almennum vinnumarkaði og þar að auki sé áhersla lögð á aukið gagnsæi og upplýsingagjöf vegna fiskverðsmála. Þar segir enn fremur að með langtímasamningi til tíu ára sé samstarf sjómanna og sjávarútvegsfyrirtækja styrkt og frekari grundvöllur lagður að því að viðhalda eftirsóknarverðum og vel launuðum störfum á sjó. Þá eigi að setja aukinn þunga í öryggismál og heilsu sjómanna með stofnun sérstakrar öryggisnefndar. Hart tekist á Aðalsteinn Leifsson, ríkissáttasemjari, segir stemninguna gríðarlega góða eftir undirskriftina. Mikil vinna hafi verið unnin síðustu daga og samninganefndirnar hafi staðið sig mjög vel. Hann segir að vinnan hafi gengið nokkuð vel eftir að deilurnar rötuðu á borð hans. „Það var auðvitað hart tekist á stundum en þetta var virkilega gott samtal,“ sagði Aðalsteinn. Aðalsteini telst til að þetta sé lengsti kjarasamningur sem gerður hefur verið á Íslandi. Tryggja kjör til lengri tíma Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri FSF, segir þetta vera risastóran áfanga. Það hafi tekið langan tíma að ná samningum en mikið traust hafi myndast milli deiluaðila á þeim tíma. Hún segir að nú sé málið úr þeirra höndum, kynna þurfi samningana og vona eftir því besta. „Ég tel að við séum að tryggja sjómönnum góð kjör til lengri tíma,“ segir Heiðrún í samtali við fréttastofu. Heiðrún sagði einni að halda þyrfti áfram að byggja traust og auka stöðugleika. Ekki síst vegna þess að með þessum samningi væri verið að gera eitthvað sem hefði ekki verið gert áður. Verið væri að binda saman jákvæða þætti hlutaskiptakerfisins og almenna vinnumarkaðarins. Ganga sáttir frá borði Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, segir mjög góða stemningu hjá þeim sem að samningunum stóðu. Mikil vinna hafi verið lögð í þetta frá áramótum með löngum fundum nokkrum sinum í viku. Hann segist þeirrar skoðunar að um tímamótasamning sé að ræða sem tryggi sjómönnum hækkanir í samræmi við aðra kjarasamninga á tímabilinu og vel hafi verið komið til móts við þá varðandi lífeyrissjóði. Þrátt fyrir það séu tíu ár ekki langur tími þegar komi að sjómönnum. Undanfarin tólf ár hafi þeir til að mynda verið samningslausir í níu ár. Kynningarvinnan mun hefjast strax á morgun og standa yfir í næstu viku. Eftir það hefst atkvæðagreiðslan líklega, samkvæmt Valmundi, og á hún að standa yfir í þrjár vikur. „Við göngum mjög sáttir frá borði og teljum þetta mjög ásættanlegt fyrir íslenska sjómenn.“ Kjaramál Sjávarútvegur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Erlent „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Innlent „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Innlent Halla Hrund áfram efst Innlent Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Forsetaefni tókust á um forsetavaldið „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Bein útsending: Bjarkey kynnir lagareldisfrumvarpið Neyðast óvænt til að tæma laugina Bein útsending: Þrjátíu ár af EES-samstarfi Drógu fiskibát sem fékk veiðarfæri í skrúfuna til hafnar Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Stjórn Íslensku óperunnar afar gagnrýnin á frumvarp um Þjóðaróperu Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Bein útsending frá samstöðutónleikum í Háskólabíó í opinni dagskrá Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Nýtt sanngirnisbótafrumvarp gæti komið fram Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Engri kirkju hollt að vera of nálægt ríkinu Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Sjá meira
Þessir samningar eru líklega þeir lengstu sem skrifað hefur verið undir á Íslandi. Sjómenn hafa verið án samninga frá lokum árs 2019 en viðræðum var síðast slitið árið 2021. Viðræður hafa staðið yfir í Karphúsinu frá áramótum og hefur þeim verið lýst sem hörðum en góðum. Í tilkynningu frá SFS segir að megininntak samninganna lúti að betri kjörum og réttindum til framtíðar, auk hnitmiðaðra aðgerða til að auka traust við skipti á verðmætum úr sjó. Greiðslur í lífeyrissjóð og kauptrygging hækki í samræmi við samninga á almennum vinnumarkaði og þar að auki sé áhersla lögð á aukið gagnsæi og upplýsingagjöf vegna fiskverðsmála. Þar segir enn fremur að með langtímasamningi til tíu ára sé samstarf sjómanna og sjávarútvegsfyrirtækja styrkt og frekari grundvöllur lagður að því að viðhalda eftirsóknarverðum og vel launuðum störfum á sjó. Þá eigi að setja aukinn þunga í öryggismál og heilsu sjómanna með stofnun sérstakrar öryggisnefndar. Hart tekist á Aðalsteinn Leifsson, ríkissáttasemjari, segir stemninguna gríðarlega góða eftir undirskriftina. Mikil vinna hafi verið unnin síðustu daga og samninganefndirnar hafi staðið sig mjög vel. Hann segir að vinnan hafi gengið nokkuð vel eftir að deilurnar rötuðu á borð hans. „Það var auðvitað hart tekist á stundum en þetta var virkilega gott samtal,“ sagði Aðalsteinn. Aðalsteini telst til að þetta sé lengsti kjarasamningur sem gerður hefur verið á Íslandi. Tryggja kjör til lengri tíma Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri FSF, segir þetta vera risastóran áfanga. Það hafi tekið langan tíma að ná samningum en mikið traust hafi myndast milli deiluaðila á þeim tíma. Hún segir að nú sé málið úr þeirra höndum, kynna þurfi samningana og vona eftir því besta. „Ég tel að við séum að tryggja sjómönnum góð kjör til lengri tíma,“ segir Heiðrún í samtali við fréttastofu. Heiðrún sagði einni að halda þyrfti áfram að byggja traust og auka stöðugleika. Ekki síst vegna þess að með þessum samningi væri verið að gera eitthvað sem hefði ekki verið gert áður. Verið væri að binda saman jákvæða þætti hlutaskiptakerfisins og almenna vinnumarkaðarins. Ganga sáttir frá borði Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, segir mjög góða stemningu hjá þeim sem að samningunum stóðu. Mikil vinna hafi verið lögð í þetta frá áramótum með löngum fundum nokkrum sinum í viku. Hann segist þeirrar skoðunar að um tímamótasamning sé að ræða sem tryggi sjómönnum hækkanir í samræmi við aðra kjarasamninga á tímabilinu og vel hafi verið komið til móts við þá varðandi lífeyrissjóði. Þrátt fyrir það séu tíu ár ekki langur tími þegar komi að sjómönnum. Undanfarin tólf ár hafi þeir til að mynda verið samningslausir í níu ár. Kynningarvinnan mun hefjast strax á morgun og standa yfir í næstu viku. Eftir það hefst atkvæðagreiðslan líklega, samkvæmt Valmundi, og á hún að standa yfir í þrjár vikur. „Við göngum mjög sáttir frá borði og teljum þetta mjög ásættanlegt fyrir íslenska sjómenn.“
Kjaramál Sjávarútvegur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Erlent „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Innlent „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Innlent Halla Hrund áfram efst Innlent Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Forsetaefni tókust á um forsetavaldið „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Bein útsending: Bjarkey kynnir lagareldisfrumvarpið Neyðast óvænt til að tæma laugina Bein útsending: Þrjátíu ár af EES-samstarfi Drógu fiskibát sem fékk veiðarfæri í skrúfuna til hafnar Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Stjórn Íslensku óperunnar afar gagnrýnin á frumvarp um Þjóðaróperu Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Bein útsending frá samstöðutónleikum í Háskólabíó í opinni dagskrá Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Nýtt sanngirnisbótafrumvarp gæti komið fram Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Engri kirkju hollt að vera of nálægt ríkinu Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Sjá meira